Síðast inni
Ég var síðast inni þann 7 júní
10.10.2007 13:56:19 / kristjanaa

3 ár....




Jæja... þá eru 3 ár liðin frá því þú kvaddir...
Alltaf er þessi tími jafn erfiður og erfitt að sætta sig við staðreyndirnar...
Það eru svo margir sem maður hefur fylgst með eftir þín veikindi sem hafa fallið fyrir krabbanum síðan þú kvaddir og alltaf jafn erfitt að horfa á eftir þessu sterka fólki.

Ég kemst ekki norður til þín í þetta skiptið sem mér þykir mjög leiðinlegt... en Júlía vinkona ætlar að koma með blóm og kerti til þín frá mér í dag.

Þú Jói minn fylgist vonandi með okkur áfram og passar upp á litla engilinn minn... sem ég veit þú gerir alveg pottþétt.

Við söknum þín öll og minning þín lifir alltaf með okkur...

Ástarkveðja
Kristjana


» 4 hafa sagt sína skoðun

17.06.2007 12:51:50 / kristjanaa

17. júní 2007


Elsku hjartans Jói minn.
Í dag er þinn dagur, 17. júní og þú hefðir orðið 24 ára í dag.

Helgin hérna fyrir norðan er búin að vera mjög fín, gott veður og svaka stuð.
Þú eflaust hefur fylgst með spyrnunni með okkur í gær, og kíkir á bílasýininguna í dag. Ég kem í heimsókn til þín í dag með blóm og eitthvað fallegt og auðvitað fána til að flagga, eins og er jú alltaf gert á þínum degi:)

Ég verð hér í viku í viðbót svo ég kíki á þig oft áður en ég fer heim og bæti á blómin.

Knús og kossar alla leið til þín ástin mín.
Minning þín lifir með okkur öllum

Kveðja
Þín Kristjana


» 3 hafa sagt sína skoðun

01.03.2007 22:00:38 / kristjanaa




» 3 hafa sagt sína skoðun

02.01.2007 13:47:08 / kristjanaa

Jólin og nýtt ár...



Gleðileg jól og gleðilegt nýtt ár, hjartans kallinn minn...

Árin hafa sko verið fljót að líða, og voru þetta 3ju jólin mín án þín. Ég kom til Akureyrar og var yfir jólin. Ég og mamma byrjuðum á því að fara að heimsækja foreldra þína þegar við komum í bæinn og þau voru ekkert smá ánægð að sjá okkur, enda svo langt síðan ég hitti þau seinast..blushing
Við mamma eyddum dágóðum tíma upp í garði hjá þér á aðfangadag að reyna að kveikja á kertum í þessu brjálaða roki sem var. Enduðum á því að fara á bensínstöð að ná í zippo kveikjarabensín og gátum þá loksins kveikt á öllum kertunum.
Ég lagði líka hjá þér fallegan krans sem ég bjó til og vonandi helst hann fallegur lengi.

Ég kveð þig enn og aftur með trega og söknuði...
Hafðu það gott hjá ömmu þinni og öfum.

Gleðileg jól og gleðilegt nýtt ár

Elska þig

Þín Kristjana


» 0 hafa sagt sína skoðun

10.10.2006 10:06:11 / kristjanaa

2 ár....

 





 
 
Í dag 10 október 2006, eru 2 ár elsku Jói minn síðan þú kvaddir okkur.
Alveg ótrúlegt hvað tíminn flýgur áfram en samt finnst mér eins og þetta hafi gerst bara allt í gær.
Þessi tvö ár hafa verið rosalega misjöfn hjá mér og bæði upp og niður...
En í dag... þá er svo erfitt að reyna að sætta sig við þetta, ég sakna þín svo mikið og elska þig alveg óendanlega mikið.
Ég hugsa til þín á hverjum degi og vildi óska að þú værir enn hérna hjá mér.
Ég ætla að kveikja á tveimur kertum fyrir þig í dag.

Hver getur siglt þó að blási ei byr,
bát sínum róið án ára?
Hver getur kvatt sinn kærasta vin.
kvatt hann án sárustu tára?

Ég get siglt þó að blási ei byr,
bát mínum róið án ára.
En ekki kvatt minn kærasta vin,
kvatt hann án sárustu tára.

Elsku hjartans ástin mín, ég kveð þig í bili með þessari vísu.
Þú veist ég mun alltaf elska þig og sakna þín.
 
Minning þín er ljósið í lífi mínu.

Þín unnusta Kristjana
.


» 3 hafa sagt sína skoðun

18.06.2006 22:22:10 / kristjanaa

Til hamingju með daginn ástin mín...

Til hamingju með daginn elsku Jói minn.

Ég kíkti til þín um helgina og lagaði til á leiðinu þínu og setti nýjan fallegan engil.



Sakna þín kallinn minn...

knús knús..


» 2 hafa sagt sína skoðun

31.05.2006 13:18:08 / kristjanaa

Minn besti vinur....

Mc Hlynur - minn besti vinur

Þetta byrjar allt sumarið 1983
þann 17. Júní þú komst út með þitt flotta dú
þú varst myndarlegt barn sögðu allir/
þegar allir sáu þig voru allir fallnir/
en leiðindin byrjuðu aðeins á sjötta ári/
þú þurftir að fara í aðgerð útaf hjartasári/
það var flugið með þig beint til London/
og móðir þín var hrædd um að missa sinn son/
Þessi hjartaaðgerð gékk ofboðslega vel/
útaf hjartað þitt er gott og því líður vel/
þú fermdist,
amma og afi voru glöð/
að sjá barnabarnið sitt staðfesta skírnina/
en núna er þetta allt fyrir þeim bara minningar/
Þú kynntist systur minni á Akureyri 2003/
þegar að löppin var farin áður en áttatíu og þrjú/
þið byrjuðuð saman ætluðuð að eiga góða framtíð/
en þessi ógeðslegi krabbi leit út eins og heimsstríð/

Elsku Besti Jói minn/
ég mun þig alltaf elska/
mamma&pabbi elska soninn/
þú ert systur minnar gæska/

þetta byrjar allt þannig að jói deyr/
ég mun alltaf elska þig og aldrei gleyma þér meir/
Elsku besti Jóhann Ottó afhverju þurftiru að deyja
ég sakna þín svo mikið að mig langaði þér fullt að segja/
Um allar mínar sögur og öll mín ævintýri/
það var gott að þú varst ekki ölvaður undir stýri/
Þetta byrjaði allt aðeins sextán ára/
að löppina þurfti að fjarlægja, ég fór að gráta/
þessi ógeðslegi sjúkdómur sem kallaður er krabbi/
þinn missir var erfiður fyrir mig eins og mamma og pabbi/
læknarnir sögðu að þú myndir aldrei fá krabban aftur/
þú gætir lifað eðlilegulífi í öllu þessum meiriháttar kraftur/
Læknarnir höfðu rangt fyrir sér/
þú fékkst krabban aftur, ég vona'ann endi ekki á mér/
það þurfti að flytja þig á sjúkrahús þann 10. ágúst/
allt mitt líf var þann dag lagt í rúst/
fjölskyldan mín ég, karen, mamma og pabbi/
fórum til spánar degi eftir þinn sjúkdóm/
ég saknaði þín svo mikið þar að ég var að deyja/
ég vildi fara heim en það var ekki hægt að leyfa/
við komum heim þann tuttugasta og fimmta/
ég fór beint til þín en mig hefð gleymt að/
kaupa gjöf handa þér á spáni/
því allur minn peningur varð að láni/

Elsku Besti Jói minn/
ég mun þig alltaf elska/
mamma&pabbi elska soninn/
þú ert systur minnar gæska/

ég var hjá ömmu og afa þann 9 október/
mamma og pabbi áttu brúðkaupsafmæli/
en þann dag þá sátu þau hjá þér á þínu hæli/
ég gisti hjá afa og ömmu þann 9. október/
morguninn þegar að ég vaknaði var ég hræddur/
já það ég sver/
mamma og pabbi komu og sögðu mér vondar fréttir/
fréttirnar voru þær að þú værir látinn/
ég grét og grét ég trúði ekki að þú værir dáinn/
ég fór beint til þín og sá þig liggjandi í rúminu/
þar látinn ég var inni hjá í c.a klukkutíma/
ég kyssti þig á ennið þegar að ég fór að tala í símann/
mamma kom ég grét og grét/
um þessa stund vissi ég valla hvað ég hét/

Þennan texta samdi Hlynur litli bró... og lag við það líka sem hann syngur sjálfur til Jóa. Mér finnst þessi texti alveg frábær hjá honum og lagið ekki verra...
Hvernig finnst ykkur??

Takk fyrir þetta Hlynur :*

-knús og kossar-

Sakna þín Jói minn :*


» 6 hafa sagt sína skoðun

25.12.2005 23:42:50 / kristjanaa

Gleðileg Jól ástin mín...

Gleðileg Jól og hafðu það ávallt sem best...

Ástar og saknaðarkveðjur
 Þín Kristjana love struck


» 1 hafa sagt sína skoðun

29.06.2005 20:55:37 / kristjanaa

Mynd.....



Á afmælisdaginn þinn :*


» 3 hafa sagt sína skoðun

17.06.2005 17:56:46 / kristjanaa

Til hamingju með afmælið þitt ástin min...

Elsku ástin mín...til hamingju með afmælið þitt í dag :) Hafðu það alveg ofboðslega gott í dag og alla daga...

Sakna þín og elska þig ótrúlega mikið...:*

Þín Kristjana


» 4 hafa sagt sína skoðun

07.04.2005 21:36:13 / kristjanaa

Elskan mín...

Ég elska þig elsku ástin mín...heitar en allt annað...
Þú munt alltaf vera í hjarta mínu og huga mínum.

Sakna þín alveg afskaplega :cry:

Þín Kristjana :*


» 0 hafa sagt sína skoðun

09.11.2004 23:09:52 / kristjanaa

Fallegi engillinn minn...

Þú hefur oft í hönd mér haldið,
horft í augu mín.
Aldrei svíkur, aldrei deyr
endurminning þín


» 0 hafa sagt sína skoðun


Dagsetning
9. febrúar 2012
Til minningar um J�?�?�?�??�?�?�â�?��?��?�?â�?� �?

Enginn stöðvar ár við &oacut